|
Í fréttum er þetta helst.... |
|
08.02.2012 09:06Boston trúlega í júníFékk bréf í gær um að við myndum sennilega ekki fara með Bjartmar til Boston fyrr en í júní. Varð ekkert sérstaklega upprifin yfir því nema auðvitað að það er betra að hafa einhvern mánuð í huga heldur en að halda alltaf að við séum að fara í næsta mánuði. Læknirinn hans í Boston er í Kína að kenna þarlendum og verður einhverja mánuði í viðbót og þar sem Bjartmar er "sérstakt" tilfelli þá vill hann sjá um hann í Boston. Er þá ekki bara að bíða og fara þegar maður á að fara. Um síðustu helgi var hér lítið mót hjá krökkunum og það tókst í alla staði frábærlega. Alltaf svo gaman að koma saman. Bjartmar og Sigurgeir tóku að sjálfsögðu þátt, voru alveg neyddir í það Allir pollarnir fengu verðlaun og hér tekur hann við sýnum. Takk Höskuldur ég stal nokkrum myndunum þínum af Neistavefnum. Sigurgeir fékk Hátíð lánaða aldrei þessu vant. Hún var reyndar eitthvað fúl yfir þessu og var ekkert glöð að fara inná völlinn, veit hún er að fara að keppa, það þarf eitthvað að fara að tala hana til...... Hann vann, þau eru orðin nokkuð vön saman og hún veit nú aðeins hvað hún á að gera blessunin en það þarf jú alltaf einhvern til að stjórna. Veit samt ekki alveg hvort maður á að nenna að eltast endalaust við einhver mót. Eftir mótið var æskulýðsnefndin með kaffi og kökur uppí kaffistofu og það var mjög notalegt, aðeins að setjast niður og spjalla og fá sér kökur. Framundan eru endalausar mótaraðir. Mót í Reiðhöllinni, Liðakeppnin á Hvammstanga, Grunnskólamót og ég veit ekki hvað og hvað. Spurning hvað maður gerir. Er eiginlega búin að fá nóg af þessu öllu en það eru auðvitað ýmsar ástæður fyrir því sem verða ekki tíundaðar hér. Skrifað af selma Flettingar í dag: 22 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 409 Gestir í gær: 35 Samtals flettingar: 146675 Samtals gestir: 35217 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:07:01 |
Eldra efni
Tenglar |